31.3.2008 | 20:04
Ísilagt Eyrarvatn
Jú, föstudagskvöldið er liðið. Eins janúar, febrúar og mars.
Skólamót var frábært. Góður andi í hópnum, yndislegt að vera með vinum sínum, hlægja og grínast. Átti yndislegar stundir úti á ísilögðu Eyrarvatni. Horfði á fjöllin í kring, litlu krúttlegu bústaðina í fjarska og vini mína tiplandi í kringum mig. Hilmar og félagar dunduðu sér við að gata rúmlega 25 sentimetra ísinn. Klöngruðust svo með stóra íshellu upp í fjöru, þvílíkt afrek strákar!
Catan var spilað af miklum móð og rústaði ég Benjamín í póker. Upplifði trylltasta kvöldmatinn minn hingað til á fimmtudeginum. Kristjana stóð sig frábærlega í að auka samheldni innan félagsins með hópsöng og fleiru, Gylfi var heltekinn af smelluparketi, Kristín var sjúklega-uppáþrengjandi-fyndin við að trufla alla þá sem reyndu að stjórna matartímanum og Helga Sif sannfærði litla sál um að hún væri í raun óskaplega hrifin af trúðum. Perla, snilldar leikur!
Súkkulaðieggin mín síðan á páskunum bíða mín sum enn hér á skrifborðinu.... "..borðaðu mig, borðaðu mig...". Tja.´
Vinkona mín hefur eignast litla sál á priki. Minnir mig á alla litlu fuglana sem að ég hef átt í gegnum tíðina. Minningar af litlum krúttum, sitjandi á vísifingri manns eða á öxlinni....Yndiiiislegt!
Um bloggið
Sólargeislinn
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
jeij, blogg
. Takk fyrir frábært skólamót og ég er sko algjörlega sammála þér að leikurinn í kvöldmatnum var snilld, þó ég hafi ekki komist á skrið, hehe. Vissi ekki alveg hvernig ég ætti að koma því inní allar samræður hvað Dorrit væri nú smekkleg og alltaf vel til fara, haha
. Þetta mót var æði, og ég er strax farin að hlakka til þess næsta!
það er bara ooof langt í það.
Þú verður svo bara að passa þig þegar Hilmar festir upp gervihnattadiskana, annars er voðinn vís, haha
(sjá síðuna mína til útskýringa:P )
Hildur Kjartansdóttir (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 00:25
Hey my beautiful girl!
Ohh já það var snilld upp í Vatnaskógi....Þú stóðst þig nú ekki alveg nógu vel að auglýsa teknókvöld Exos á Brodway ;)
En jæja það fer að styttast í Hlíðina ekki satt!?!?
Það er amk yndislegt veður úti. Spurning um að línuskauta eftir skóla:)
Love you!
Perla (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 15:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.